Skilmálar

Skilmálar

Eftirfarandi skilmálar gilda um öll þau viðskipti sem eiga sér stað í gegnum vefsíðuna korriro.is.

Sendingarkostnaður og afhending:

Sendingarkostnaður er eftir gjaldskrá Dropp á sendum vörum frá Korriro.is á afhendingarstaði Dropp

Virka daga:
Allar pantanir sem berast fyrir kl 13:00 eru afgreiddar og afhendar á Dropp afhendingarstað sama dag á milli kl16-20 á Höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturhorninu.
Landsbyggðin: Sendingar eru tilbúnar til afhendingar eftir 1-2 virka daga.

Allar pantanir sem berast eftir kl 13:00 eru afgreiddar og afhendar á Dropp afhendingarstað næsta dag á milli kl.16-20 á Höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturhorninu.
Landsbyggðin: Sendingar eru tilbúnar til afhendingar eftir 1-2 virka daga.

Helgar:
Allar pantanir sem berast eftir kl 13:00 á föstudögum eru afgreiddar og afhentar á Dropp afhendingarstað næsta virka dag.

 

Sótt á lagerinn:
Pantanir eru afgreiddar samdægurs og hægt er að sækja pantanir frítt alla virka daga á milli kl.10-15 í Grófinni 10a, Reykjanesbæ.

Heimsending með Dropp:
Kvölddreifing:
Heimsendingar eru afhentar á milli kl. 17:45 og 22:00. Viðtakandi fær skilaboð kl 17:15 með nánari afhendingartíma og getur fylgst með bílstjóranum þegar hann nálgast.

Dagdreifing með Dropp:
Dagdreifingar eru afhentar á milli kl. 10:00 og 16:00.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur: 

Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru gegn fullri endurgreiðslu. Skilyrði fyrir skilum eru að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð skal innsigli hennar vera órofið. Skilafrestur byrjar að líða þegar vara er afhent skráðum viðtakanda. Sé óskað eftir endurgreiðslu skal kvittun fyrir vörukaupum að fylgja með. Sé vara fengin að gjöf eða kvittun ekki til staðar er vara endurgreidd í formi inneignar.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að koma vörunni til Korriró (Grófin 10a, Reykjanesbær), eða endursenda með Dropp/Póstinum. Endursendingarkostnaður bætist við samkvæmt verðskrá Dropp og er breytilegur eftir landshlutum.

Hægt er að óska eftir skilum með því að senda email á [email protected]

Það er einnig hægt að hafa sambandi við okkur í síma 792 0202 milli kl.10-15 alla virka daga.

Vöruskipti:

Sé óskað eftir því að skipta/skila ógallaðri vöru í aðra vöru eða fá inneignarkóða/endurgreiðslu, ber viðskiptavini að koma vörunni til Korriró í Grófina 10a, Reykjanesbæ á sinn kostnað.
Ef notast er við Dropp eða Póstinn ber viðskiptavini að greiða endursendingar/sendingarkostnaðinn, einnig er hægt að draga kostnaðinn frá inneigninni.
Dropp: Höfuðborgarsvæði 790 kr. / Landsbyggðin 990 kr.
Pósturinn: samkvæmt verðskrá Póstsins.

Gölluð vara:

Komi upp sú leiðinlega staða að kaupanda berist gölluð vara er honum boðin ný vara í staðinn. Sé varan ekki til á lager er hún endurgreidd að fullu eða kaupanda boðin önnur sambærileg vara í staðin. Endursendingar/sendingarkostnaður er á ábyrgð Korriróar.

Útsölur og vöruskil:

Skilaréttur gildir ekki um vörur sem keyptar eru á útsölu.

Verð, skattar og gjöld:

Athugið að öll verð sem gefin eru upp í netversluninni eru með 11% eða 24% virðisaukaskatti, eftir því sem við á. Verð eru gefin upp með fyrirvara um mistök eða prentvillur og áskilur Korriró sér rétt á að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga. Athugið að verð geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur: 

Greiðslur með kreditkorti fara í gegnum örugga greiðslugátt Teya (teya.is) sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.

Korriró býður viðskiptavinum sínum einnig að greiða í gegnum Netgíró, Pei og Aur.

Trúnaður:

Korriró heitir fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Helstu upplýsingar:

Korriró.is er rekin af Matarmenn ehf.

Grófin 10A, 230 Reykjanesbær.
Kt. 430519-0260
Vsk. númer: 135416
[email protected]
s. 792 0202